Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Ráðgjöf í skjalastjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
Ráðgjöf í skjalastjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
FOCAL ráðgjöf hefur síðustu þrjú ár veitt tugi stofnana og fyrirtækja ráðgjöf við innleiðingu á heildrænni skjalastjórnun.
FOCAL ráðgjafar hafa verkstýrt, framkvæmt og leiðbeint stofnunum og fyrirtækjum við að uppfylla alþjóðlegar og lagalegar kröfur varðandi skjalastjórnun hvort sem þau eru á byrjunarstigi í skjalastjórnun eða komin þó nokkuð áleiðis í því ferli.

Ráðgjöfin felur í sér m.a.
1. Mat á núverandi stöðu fyrirtækja/ stofnana við að uppfylla alþjóðlegar kröfur um skjalastjórn og upplýsingaöryggi byggt á ISO 15489 og/eða ISO 27001.
2. Tillögur að úrbótum samkvæmt niðurstöðu þess stöðumats sem framkvæmt var
3, Aðstoð við innleiðingu á skjalastefnu, markmiðasetningu og leiðum til að tryggja varðveislu og öryggi skjala
4. Kortlagning á rekstraferlum stofnana / fyrirtækja til undirbúnings við gerð sameiginlegs skjalaflokkunarkerfis og skráningu ferla og skjala.
5, Gerð sameiginlegs skjalaflokkunakerfis til að auðvelda meðhöndlun, geymslu, eyðingu og endurheimt skjala.
6. Gerð verklagsreglna og vinnulýsinga á rekstraferlum fyrirtækjanna og stofnana svo og verklagsreglu um skjalastýringu og endurskoðun á geymsluumhverfi , aðgangsstýringu, afritunarferli o.fl.
7. Innleiðing m.a. á skjalakerfum, gæða-, úttektar- og ábendingakerfum.
9. Markaðssetningu meðal starfsmanna á breyttum vinnubrögðum, stefnum, skjalaflokkunarkerfum, skjala- og gæðakerfum.
9. Viðhald þekkingar með endurmenntun, nýliðaþjálfun, námskeiðum eða örnámskeiðum samkvæmt verklagi hvers fyrirtækis eða stofnunar.
10. Aðstoð við skipulag og frágang eldri gagna


(skráð 15. sept. 2010)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook