FOCAL Tækjaskrá
Tækjaskrá er kerfi sem heldur utan um upplýsingar er varða tæki og aðrar eignir fyrirtækisins. Í Tækjaskrá er hægt að skrá öll tæki s.s. tölvur, prentara, síma, bíla, mælingatæki o.m.fl. Einfalt og þægilegt kerfi sem heldur utan um mikilvægar eignir fyrirtækisins, allt á einum stað.
Helstu eiginleikar FOCAL Tækjaskráar:
- Auðvelt er að skoða upplýsingar eftir heiti tækja, tækjaflokkum, tegund, stöðu o.fl.
- Heldur utan um bilanaskrá, hvað gerðist, hvenær tækið fór í viðgerð, hvert og við hvað var gert, auk viðgerðarkostnaðar.
- Mögulegt er að skoða upplýsingar um kaup tækis, s.s. söluaðila, kaupverð, afskriftir, raunverð og hvenær það var keypt.
- Hægt er að fylgjast með kostnaði vegna viðgerða.
- Auðvelt er að halda utan um viðtökuprófanir tækja og eigna.
- Hægt er að halda utan um kvörðun tækja, viðhaldssögu, og viðhaldsáætlunum.
Hvers vegna FOCAL Tækjaskrá?
Ávinningur af notkun FOCAL Tækjaskrár er að stjórnendur fyrirtækja hafa góða yfirsýn yfir útlán, staðsetningu, bilanir, viðhald, kvörðun, ásamt sögu tækja og eigna fyrirtækisins.
Hugbúnaður:
Notandi þarf að vera með Windows 95/98/NT/2000/XP/Vista eða Macintosh og útgáfu 5.0 af Lotus Notes eða nýrri. Netþjónn þarf að vera með Lotus Domino server útgáfu 5.0 eða nýrri.

Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is