Heim
Fréttir
Starfsumsókn
Fyrirspurnir
Ábendingar
Verkbeiðnir
Styrkbeiðnir
Leita á vef
Ítarleg leit
RSS
Nýjustu fréttir
Skoða eldri fréttir...
Heim
:
Fréttir
: Veistu hvort þitt fólk vinnur eins og lýst er í gæðahandbókinni?
Veistu hvort þitt fólk vinnur eins og lýst er í gæðahandbókinni?
Það er góður tími í byrjun árs að skipuleggja hvernig við getum yfirfarið hvort verið sé að vinna samkvæmt því verklagi sem lýst er í gæðahandbókinni. Þó að verklagi sé vel lýst í gæðhandbók, þá vita flestir að það er engin trygging fyrir því að farið sé eftir því og þess vegna er úttekt, skoðun eða eftirlit með verklaginu nauðsynlegt. FOCAL Úttektarkerfið hjálpar við það eftirlit en í því er innbyggð aðferðafræði og mikil sjálfvirkni. Kerfið hefur verið í þróun í yfir 15 ár og nú í síðustu útgáfu hefur kerfið verið gert spjaldtölvuvænt.
Í febrúar og mars bjóðum við viðskiptavinum okkar 25% afslátt af Úttektarkerfinu. Við viljum einnig mæla með FOCAL Action, það litla stoðkerfi hjálpar fyrirtækum að sjá til þess að verk séu unnin á réttum tíma.
Hafðu samband við okkur í síma 5400 900 eða í tölvupóst focal@focal.is
FOCAL Úttektir útgáfa 4.0 er spjaldtölvuvæn
Nýjasta útgáfan af Úttektarkerfinu er algjör bylting því hún gefur möguleika á því að unnið sé í Lotus Notes, vefrápurum og á spjaldtölvum (iPad og Android).
FOCAL Action og Úttektir tryggja rétta framkvæmd verklags
Margir hafa áhyggjur af hvernig hægt er að tryggja að verklagsregla/vinnulýsing komist til framkvæmda, þar kemur FOCAL Action til sögunnar. Í FOCAL Action er hægt að skilgreina hvaða verk skal vinna, hvenær og af hverjum. Þeim verkum er síðan fylgt eftir með sjálfvirkum tölvupóstum.
En hvernig er hægt að fylgjast með hvort verið sé að vinna eins og lýst er í gæðahandbókinni?
Svarið er, með reglulegu eftirliti í gegnum úttektir. FOCAL Úttektarkerfið er tengt við Gæðahandbókina (nýjung). Fyrir vikið er auðvelt að skipuleggja úttektaráætlun, skrá frávik og senda þau í sjálfvirkan valkvæman úrbótaferil.
(skráð 20. feb. 2012)
Til baka
Prentvæn útgáfa
Senda í tölvupósti
Senda á Facebook