FOCAL Verkefnastjórnun
Verkefnastjórnunin hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að halda utan um og skipuleggja þau verkefni sem unnin eru. Hægt er að skoða þau verkefni sem eru á skrá eftir mörgum mismunandi möguleikum og því t.d. hægt að fylgjast með hvort að óunnin verkefni séu komin á eindaga.
Helstu eiginleikar FOCAL Verkefnastjórnunar:
- Hægt er að láta verkefni reka sig áfram eftir fyrirfram ákveðnum vinnuferlum
- Framvísun verkefna og verkbeiðna verður einföld og skilvirk
- Starfsmenn hafa yfirlit yfir þau verkefni sem þeir eru þátttakendur í
- Hægt að sækja fyrirfram gerð skjalsnið
- Hægt er að tengja bréf og skjöl við viðeigandi verkefni
- Mikill tími sparast við verkefnavinnu og verkefnastjórnun
Hvers vegna FOCAL Verkefnastjórnun?
Með FOCAL Verkefnastjórnun verður öll stjórnun skilvirkari og minni hætta er að á að verkefni týnist í kerfinu. Með því að hver starfsmaður hafi gott yfirlit yfir þau verkefni sem hann er aðili að getur hann skipulagt sig þannig að sem mestur árangur náist og verkefni nái að klárast á fyrirfram áætluðum tíma.
Hugbúnaður:
Notandi þarf að vera með Windows XP/Vista/Win7 eða Macintosh og útgáfu 8.0 af Lotus Notes eða nýrri. Netþjónn þarf að vera með Lotus Domino server útgáfu 8.0 eða nýrri.
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is